Gunnlaugur í stað Þórðar
Landsliðsþjálfarararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa kallað á Skagamanninn Gunnlaug Jónsson í landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Mexíkó í næstu viku. Þórður Guðjónsson varð fyrir meiðslum í æfingaleik með Bochum gegn Groningen á föstudag og getur ekki ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna, og því var Gunnlaugur valinn í hans stað.