Ólafur Ingi í hópinn í stað Bjarna
Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður Arsenal, hefur verið valinn í landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn gegn Mexíkó í stað Bjarna Guðjónssonar, sem meiddist á æfingu með Bochum í gær. Ólafur Ingi, sem er þriðji nýliðinn í hópnum, lék með Fylkismönnum í Landsbankadeildinni í sumar og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.