Veggspjöldin hafa vakið mikla athygli
Undanfarin ár hafa verið gefin út veggspjöld til að vekja athygli á heimaleikjum A landsliðs kvenna. Óhætt er að segja að herbragðið hafi virkað, því síðan þessi hugmynd var fyrst framkvæmd hefur áhorfendafjöldinn verið á bilinu 1.000 til 3.000, en áður voru áhorfendur á bilinu 200-400.