U17 karla áfram í milliriðil
Tvö lið, Ísland og Rússland, hafa tryggt sér sæti í milliriðlum Evrópukeppni U17 landsliða karla. Í milliriðla komast tvö efstu liðin úr hverjum hinna 12 riðlanna í undankeppninni, liðið með bestan árangur í þriðja sæti og Spánn, England og Pólland sem sátu hjá í undankeppninni.