• mán. 15. sep. 2003
  • Landslið

HM kvennalandsliða hefst á laugardag

Lokakeppni HM kvennalandsliða hefst í Bandaríkjunum laugardaginn 20. september næstkomandi og eins og heimsmeistarakeppni er von og vísa eru þar saman komin öll sterkustu kvennalandslið heims. Leikið verður í 6 borgum víðs vegar um Bandaríkin, en úrslitaleikurinn fer fram í Los Angeles 12. október. Smellið hér til að skoða heimasíðu keppninnar.