Tveggja marka tap í Frakklandi
A landslið kvenna beið í dag lægri hlut gegn Frökkum í undankeppni EM, en leikurinn fór fram í Bonneuil-sur-Marne í Frakklandi. Lokatölur leiksins urðu 2-0 Frökkum í vil, en úrslitin gefa þó ekki rétta mynd af leiknum því okkar stúlkur voru síst lakari aðilinn. Munurinn í dag var hins vegar sá að þær frönsku nýttu sín færi í leiknum, en okkar stúlkur ekki. Bæði mörk franska liðsins komu á 10 mínútna kafla í síðari hálfleik. Næsti leikur A liðs kvenna er á Laugardalsvelli laugardaginn 13. september næstkomandi. Mótherjarnir eru Pólverjar og hefst leikurinn kl. 16:00.