• fös. 05. sep. 2003
  • Landslið

U21 karla - Þjóðverjarnir of sterkir

U21 landslið karla tapaði 1-3 fyrir Þjóðverjum í undankeppni EM, en leikurinn fór fram á Akranesi í dag, föstudag. Gestirnir komust yfir um miðjan fyrri hálfleik, en Sigmundur Kristjánsson jafnaði metin fyrir Ísland undir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu. Þýska liðið skoraði síðan tvö mörk með stuttu millibili í síðari hálfleik og gerði þar með út um leikinn. Þjóðverjarnir reyndust einfaldlega of sterkir fyrir okkar pilta og var sigur þeirra verðskuldaður.