U21 karla leikur við Þýskaland á föstudag
U21 landslið karla leikur gegn Þýskalandi í undankeppni EM á föstudag, en leikurinn fer fram á Akranesvelli og hefst kl. 17:00. Íslenska liðið er án stiga eftir fjóra leiki og mun hafna í neðsta sæti riðilsins, hver svo sem úrslitin verða í þeim leikjum sem eftir eru. Þjóðverjar geta hins vegar komist í efsta sæti riðilsins með sigri á morgun.