• mið. 03. sep. 2003
  • Landslið

Enskir dómarar á Ísland - Þýskaland

Dómararnir í viðureign Íslands og Þýskalands í undankeppni EM næstkomandi laugardag koma frá Englandi. Dómari verður Graham Barber, sem margir knattspyrnuáhugamenn kannast eflaust við úr beinum útsendingum frá enska boltanum. Aðstoðardómarar verða Glenn Turner og Dave Bryan, en Matt Messias verður fjórði dómari. Upphaflega átti dómarakvartett þessa leiks að koma frá Belgíu, en vegna meiðsla dómarans hefur því verið breytt.