Landsliðshópar Þýskalands
Rudi Völler, þjálfari A-landsliðs Þýskalands, og Uli Stieleke, þjálfari U21 landsliðs þeirra, hafa tilkynnt leikmannahópa sína gegn Íslendingum og Skotum í undankeppni EM. U21 lið Íslands og Þýskalands mætast á Akranesi föstudaginn 5. september og A-liðin á Laugardalsvelli daginn eftir. Þjóðverjar mæta síðan Skotum um miðja vikuna eftir leikina gegn Íslandi.