Landsliðshópur Íslands gegn Þjóðverjum
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, þjálfarar A-landsliðs karla, hafa tilkynnt leikmannahóp Íslands fyrir viðureignina gegn Þýskalandi í undankeppni EM. Á meðal þeirra 20 leikmanna sem valdir eru í hópinn er einn nýliði, Kristján Örn Sigurðsson úr KR, en alls eru valdir fjórir leikmenn sem spila með íslenskum félagsliðum. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli laugardaginn 6. september og hefst kl. 17:30.