Styrkleikalisti FIFA
Íslenska landsliðið stendur í stað á styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag og er í 59. sæti líkt og í síðasta mánuði. Heimsmeistarar Brasilíu eru efstir sem fyrr og Evrópumeistarar Frakka í 2. sæti, en þar á eftir koma Spánverjar, Argentínumenn og Hollendingar.