U21 kvenna - Bandaríkin sterkari
U21 landslið kvenna tapaði í dag gegn Bandaríkjunum í Opna NM, sem fram fer í Danmörku. Lokatölur leiksins urðu 3-0 og voru þær bandarísku sterkari aðilinn í leiknum og sóttu mikið. Hlutverk okkar stúlkna var lengst af að verjast, en þó áttu þær nokkur ágætis færi til að skora. Síðasta umferð riðlakeppninnar fer fram á föstudag og leikur Ísland þá gegn Danmörku. Sigri Ísland í leiknum leikur liðið um 3. sætið á mótinu.