Færeyski landsliðshópurinn
Henrik Larsen, landsliðsþjálfari Færeyinga í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir leikina gegn Íslandi og Þýskalandi í undankeppni EM. Tveir úr hópnum eru í leikbanni gegn Íslandi, þeir Pól Thorsteinsson, sem lék með Val árið 2000, og Óli Jóhannesen.