Fjölmiðlaráðstefna UEFA
Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, situr í vikunni fjölmiðlaráðstefnu UEFA sem fram fer í Manchester. Á ráðstefnunni, sem stendur í þrjá daga, verður fjallað um samskipti fjölmiðla við hinna ýmsu aðila innan knattspyrnuhreyfingarinnar svo sem þjálfara, dómara, félög og knattspyrnusambönd.