Leikið gegn Eistlandi á miðvikudag
A landslið karla leikur vináttulandsleik gegn Eistlandi miðvikudaginn 20. nóvember, en leikurinn fer fram í Tallinn og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV. Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands.
Lið Íslands gegn Eistlandi
Markvörður: Árni Gautur Arason.
Varnarmenn: Gylfi Einarsson, Bjarni Þorsteinsson, Hermann Hreiðarsson (fyrirliði) og Ívar Ingimarsson.
Tengiliðir: Þórður Guðjónsson, Arnar Gunnlaugsson, Pétur Marteinsson og Ólafur Stígsson.
Framherjar: Tryggvi Guðmundsson og Helgi Sigurðsson.