0-2 tap hjá U21
U21 landslið karla tapaði gegn jafnöldrum sínum frá Skotlandi í undankeppni EM í dag, en leikið var í Kaplakrika í Hafnarfirði. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en Skotar gerðu fyrra mark sitt eftir um 10 mínútna leik. Íslenska liðið var mun sterkara í síðari hálfleik, en tókst ekki að skapa sér afgerandi marktækifæri. Skotar bættu við öðru marki eftir skyndisókn í blálokin eftir að stífa pressu íslenska liðsins að skoska markinu.