Egill og Eyjólfur til Hvíta-Rússlands
Egill Már Markússon, FIFA-dómari, og Eyjólfur Finnsson, FIFA-aðstoðardómari, verða meðal dómara í einum riðla undankeppni EM U17 karla, sem fram fer í Hvíta-Rússlandi dagana 1. - 5. október. Egill verður varadómari á leik Króatíu og Hvíta-Rússlands í dag, á fimmtudag dæmir hann leik Króatíu og Georgíu og á laugardag dæmir hann leik Hvíta-Rússlands og Georgíu. Eyjólfur verður aðstoðardómari á öllum þessum leikjum.