A landslið kvenna - Síðari leikurinn
Síðari viðureign A landsliðs kvenna gegn Englandi í umspili fyrir lokakeppni HM 2003 fer fram á St. Andrews leikvanginum í Birmingham 22. september næstkomandi. Jörundur Áki Sveinsson hefur valið 16 manna hóp fyrir leikinn. Fyrri leiknum lauk sem kunnugt er með 2-2 jafntefli á Laugardalsvelli.