Fimmta viðureign Íslands og Englands
A landslið kvenna leikur heima og heiman gegn Englendingum í fyrri hluta umspils um sæti í lokakeppni HM kvennalandsliða, sem fram fer í Kína 2003. Fyrri leikurinn fer fram á Laugardalsvelli mánudaginn 16. september næstkomandi. Íslenska liðið tryggði sér sæti í þessum aukaleikjum með því að ná öðru sæti í sínum riðli í undankeppninni. Kvennalandslið Íslands og Englands hafa mæst fjórum sinnum áður og hafa þær ensku borið sigur úr býtum í öll skiptin, síðast 2-1 í Brighton 1994.