• lau. 07. sep. 2002
  • Landslið

Árni Gautur og Sævar ekki með gegn Ungverjum

Atli Eðvaldsson hefur neyðst til að gera breytingu á liði sínu gegn Ungverjum í dag. Árni Gautur Arason á við smávægileg meiðsli að stríða og getur ekki leikið, en Birkir Kristinsson tekur stöðu hans í markinu. Kjartan Sturluson, sem lék sinn fyrsta landsleik gegn Andorra í síðasta mánuði, hefur verið kallaður inn í hópinn. Þá á Sævar Þór Gíslason við meiðsli að stríða og verður ekki með í dag.