Byrjunarlið Ungverja
Ungverjar hafa tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir vináttulandsleikinn á Laugardalsvelli á morgun. Það vekur nokkra athygli í Ungverjalandi að Imre Gellei, landsliðsþjálfari Ungverja, velur Vasile Miriuta, leikmann Energie Cottbus, í stað Krisztians Lisztes, leikmanns Werder Bremen, sem hefur byrjað inna í 8 af þeim 9 leikjum sem Gellei hefur stjórnað liðinu.
Markvörður: Gabor Kiraly (fyrirliði).
Varnarmenn: Attila Dragoner, Florian Urban og Gabor Gyepes.
Tengiliðir: Csaba Feher, Zsolt Löw, Pal Dardai, Peter Lipcsei og Vasile Miriuta.
Framherjar: Miklos Feher og Krisztian Kenesei.