Fyrri viðureignir Íslands og Ungverjalands
Ísland og Ungverjaland mættust fyrst í tveimur vináttulandsleikjum árið 1988, fyrst í Búdapest og síðan á Laugardalsvelli, og unnu Ungverjar öruggan sigur í báðum leikjum, 3-0. Ísland sigraði síðan í næstu þremur viðureignum þjóðanna, 2-1 og 2-0 í undankeppni HM 1994, og fyrri viðureignina í undankeppni EM 1996, 2-1, en tapaði síðustu viðureign, 0-1 í Búdapest í nóvember 1995.