Jörundur tilkynnir hópinn gegn Englendingum
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur valið þá leikmenn sem munu mæta Englendingum á Laugardalsvellinum 16. september næstkomandi í fyrri leik liðanna í umspili undankeppni HM 2003. Síðari leikurinn fer fram á St. Andrews í Birmingham 22. september næstkomandi. Sigurvegarinn úr þessum viðureignum kemst síðan áfram í 2. hluta umspils, þar sem leikið er um sæti í lokakeppni HM.