Atli tilkynnir hópinn gegn Ungverjum
Atli Eðvaldsson, þjálfari A landsliðs karla, hefur tilkynnt 18 manna hóp fyrir vináttulandsleikinn gegn Ungverjum laugardaginn 7. september næstkomandi. Leikið verður á Laugardalsvelli að venju og hefst leikurinn kl. 16:00. Þrjár breytingar eru gerðar á hópnum sem mætti Andorra á dögunum, Birkir Kristinsson, ÍBV, Haukur Ingi Guðnason, Keflavík, og Atli Sveinn Þórarinsson, Örgryte, kom nú inn í hópinn. Atli Sveinn er eini nýliðinn í hópnum.