Þriðja viðureignin
Vináttulandsleikur Íslands og Andorra á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag verður þriðja viðureign liðanna. Þjóðirnar voru saman í riðli í undankeppni EM 2000 og sigraði Ísland þá í báðum leikjunum, 3-0 á Laugardalsvelli og 2-0 í Andorra.