A landslið kvenna leikur í Birmingham
Ákveðið hefur verið að A landslið kvenna leiki síðari leik sinn í umspili gegn Englandi á St. Andrews leikvanginum í Birmingham. Eins og kunnugt er mætir Ísland landsliði Englands í fyrri hluta umspils um sæti í úrslitakeppni HM 2003, en leikið er heima og heiman. Fyrri leikurinn fer fram á Laugardalsvelli mánudaginn 16. september, en seinni leikurinn í Birmingham sunnudaginn 22. september.