Kristinn dæmir í Finnlandi
Kristinn Jakobsson, milliríkjadómari, mun dæma vináttulandsleik Finnlands og Lettlands miðvikudaginn 22. maí næstkomandi, en leikið verður á Ólympíuleikvanginum í Helsinki. Aðstoðardómarar í leiknum verða Pjetur Sigurðsson og Eyjólfur Finnsson. Þess má geta að leiðbeinandi Kristins í hæfileikamótun UEFA var formaður dómaranefndar finnska knattspyrnusambandsins, Anders Mattsson.