Úrtaksæfingar U19 og U17 kvenna
Helgina 9. og 10. febrúar næstkomandi fara fram úrtaksæfingar fyrir U19 og U17 landslið kvenna. Laugardaginn 9. febrúar verður æft á Ásvöllum, en sunnudaginn 10. febrúar í Reykjaneshöllinni, og á þetta við um bæði liðin. Sömu helgi fara fram úrtaksæfingar fyrir yngri landslið karla og verða æfingahóparnir birtir á föstudag.