Í fyrsta sinn í riðli með Þýskalandi og Færeyjum
Ísland hefur aldrei áður verið í riðli með Þýskalandi eða Færeyjum í undankeppni stórmóts, hvorki í undankeppni EM né HM. Reyndar höfum við verið í riðli með Austur-Þýskalandi, en aldrei Vestur-Þýskalandi, og höfum aldrei mætt Þjóðverjum eftir sameininguna. Ísland var með Litháen í riðli í undankeppni HM 1998 og Skotlandi í undankeppni HM 1986.