Leikið gegn Kuwait á þriðjudag
A landslið karla leikur vináttulandsleik gegn Kuwait í borginni Muscat í Oman á morgun, þriðjudaginn 8. janúar. Leikurinn fer fram á aðalleikvangi Oman og hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma, en á undan leik Íslands og Kuwait leika landslið Oman og Rúmeníu vináttulandsleik á sama velli. Dómarar leiks Íslands verða FIFA-dómarar frá Oman.