Byrjunarlið Íslands gegn Kuwait
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Kuwait. Leikið er í borginni Muscat í Oman á morgun, þriðjudaginn 8. janúar. Leikurinn fer fram á aðalleikvangi Oman og hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands
1 Árni Gautur Arason (fyrirliði), 2 Hjálmar Jónsson, 3 Ólafur Stígsson, 4 Ólafur Örn Bjarnason, 5 Gunnlaugur Jónsson, 6 Ívar Ingimarsson, 7 Bjarni Guðjónsson, 8 Jóhann B. Guðmundsson, 9 Helgi Sigurðsson, 10 Andri Sigþórsson og 11 Einar Þór Daníelsson.
Varamenn
12 Atli Knútsson, 13 Baldur Aðalsteinsson, 14 Marel Baldvinsson, 15 Sigurvin Ólafsson, 16 Stefán Gíslason, 17 Sævar Þór Gíslason, og 18 Valur F. Gíslason.