Breyting á hópnum gegn Kuwait og Saudi-Arabíu
Atli Eðvaldsson hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum sem fer til Mið-Austurlanda í janúar og leikur tvo vináttulandsleiki, gegn Kuwait og Saudi-Arabíu. Birkir Kristinsson er meiddur og í hans stað hefur Atli Knútsson, markvörður Breiðabliks, verið valinn í hópinn. Atli er þriðji nýliðinn í hópnum.