EM U19 kvenna - Enskur sigur
U19 landslið kvenna lék í dag gegn Englendingum í 16-liða úrslitum EM. Þær ensku höfðu betur, sigruðu með tveimur mörkum gegn einu, en íslenska liðið var óheppið að ná ekki í það minnsta einu stigi út úr leiknum. Bæði mörk Englands komu í fyrri hálfleik, en Margrét Lára Viðarsdóttir minnkaði muninn á 65. mínútu. Þrátt fyrir margar tilraunir tókst okkar stúlkum ekki að jafna leikinn og fóru nokkur góð færi í súginn. Síðasti leikur Íslands í riðlinum er á mánudag gegn Dönum.