• fim. 06. sep. 2001
  • Landslið

EM U19: Stórsigur á Búlgörum

U19 landslið kvenna vann í dag stórsigur á Búlgaríu, 7-0, í undankeppni EM, en leikið er í Albena í Búlgaríu. Yfirburðir íslenska liðsins voru miklir, eins og tölurnar gefa til kynna, en staðan í hálfleik var 4-0. Dóra María Lárusdóttir skoraði 3 mörk, en hin mörkin skoruðu Elfa Ásdís Ólafsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir. Næsti leikur liðsins er á laugardag gegn Ungverjalandi.

Byrjunarliðið

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Aðrir leikmenn: Bjarnveig Birgisdóttir, Björn Ásta Þórðardóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Elfa Ásdís Ólafsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir (Bryndís Bjarnadóttir, 67. mín), Dóra María Lárusdóttir (Hólmfríður Magnúsdóttir, 74. mín), Dóra Stefánsdóttir, Ásta Árnadóttir, Guðrún Soffía Viðarsdóttir (Kristín Ýr Bjarnadóttir, 67. mín).

Hópurinn | Dagskrá