• þri. 04. sep. 2001
  • Landslið

Kristinn dæmir í Frakklandi

Miðvikudaginn 5. september mun Kristinn Jakobsson dæma leik Frakklands og Spánar í undankeppni EM, en leikurinn fer fram í Brest í Frakklandi. Aðstoðardómarar verða Ólafur Ragnarsson og Gunnar Gylfason, en Egill Már Markússon verður 4. dómari. Ljóst er að mikið mun mæða á þeim félögum þar sem leikurinn mun sennilega ráða úrslitum um það hvort liðið fer áfram í keppninni.