Atli tilkynnir byrjunarliðið
Atli Eðvaldsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn N.-Írlandi í undankeppni HM á miðvikudag. Leikið verður á Windsor Park í Belfast og hefst leikurinn kl. 19:00 að íslenskum tíma. Atli gerir engar breytingar á liðinu sem bar sigurorð af Tékkum á Laugardalsvellinum síðastliðinn laugardag.