Dómarar á næstu landsleikjum
Eins og flestum er eflaust kunnugt um leikur A landslið karla tvo leiki í undankeppni HM hér á landi í byrjun júní, gegn Möltu og Búlgaríu. UEFA hefur skipað dómara og eftirlitsmenn á leikina, sem og á leiki U21 landsliðs karla í undankeppni EM gegn sömu liðum.