Leikdagar A liðs kvenna í HM
Samið hefur verið um leikdaga Íslands í undankeppni fyrir HM kvenna í Kína 2003. Íslenska liðið er í riðli með Rússum, Ítölum og Spánverjum og ljóst er að riðillinn verður mjög erfiður enda eru bæði Rússar og Ítalir í úrslitum EM í Þýskalandi í sumar. Sigurvegari riðilsins fer beint í úrslitakeppnina í Kína, liðin í öðru sæti spila útsláttarleiki um laust sæti en liðið sem verður í fjórða sæti spilar um fall í annan styrkleikaflokk.