Ársþing KSÍ 10.-11. febrúar
55. ársþing KSÍ fór fram á veitingastaðnum Ránni í Reykjanesbæ um síðastliðna helgi. Þingið var sett að morgni laugardagsins 10. febrúar og því var slitið um hádegi á sunnudeginum 11. febrúar. Sjö tillögur lágur fyrir þinginu að þessu sinni, fimm þeirra voru samþykktar, einni var vísað í sérstakan starfshóp og einni var vísað til mótanefndar. Engar breytingar urðu á stjórn KSÍ, sem sést hér á myndinni til hægri. Aftasta röð frá vinstri: Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, Jóhannes Ólafsson, Einar Friðþjófsson, Þórarinn Gunnarsson og Jakob Skúlason. Smellið hér að neðan til að skoða nánar allar upplýsingar um þingið og niðurstöður þess. |