Stefnir í hörkuleik hjá U21
Á morgun, föstudag kl. 18:00, mætast U21 landslið Íslands og Danmerkur á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í undankeppni EM U21 liða. Búast má við hörkuleik því í báðum liðum eru margir mjög efnilegir leikmenn sem vert er að fylgjast vel með í framtíðinni. Aðgangur að leiknum er ókeypis og er fólk því hvatt til þess að fjölmenna í Kaplakrika og hvetja okkar stráka til dáða.