Leyfisstjórn
Stjórn leyfismála er í höndum leyfisstjóra KSÍ
Leyfisstjóri: Fannar Helgi Rúnarsson
Beinn sími: 510 2929
GSM: 696 7703
Tölvupóstur: fannar@ksi.is
Leyfisstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra KSÍ og fer með stjórn leyfismála. Verkefni leyfisstjóra eru m.a.:
- undirbúningur, framkvæmd og frekari þróun leyfiskerfisins,
- að veita leyfisráði og leyfisdómi nauðsynlega þjónustu,
- að aðstoða, veita ráðgjöf og fylgjast með leyfishöfum, og
- að vera samskiptaaðili og deila reynslu með leyfisveitingadeildum annarra knattspyrnusambanda innan UEFA og með UEFA.
Leyfisstjórn þarf að auki að hafa a.m.k. einn starfsmann eða njóta þjónustu utanaðkomandi fjármálaráðgjafa, sem er endurskoðandi, eða hefur nokkurra ára starfsreynslu (“viðurkenning um hæfni”).
Allir sem koma að leyfisferlinu verða að gæta algers trúnaðar um upplýsingar og gögn sem þeir fá meðan á leyfisveitingarferlinu stendur. Vegna þessa er undirrituð sérstök yfirlýsing (sjá hér neðar á síðunni).
Upplýsingar um meðlimi leyfisráðs og leyfisdóms er að finna í valmyndinni hér hægra megin, undir Um KSÍ / Nefndir. Í leyfisráði og leyfisdómi þurfa að sitja a.m.k. einn lögfræðingur og einn endurskoðandi.
- TMA 05.1.2 - Skipurit leyfisstjórnar
- TMA 06.1.2 - Starfslýsing Leyfisstjóra
- TMA 06.1.6 - Starfslýsing formanns Leyfisráðs
- TMA 06.1.5 - Starfslýsing formanns Leyfisdóms
- TMA 06.1.7 - Starfslýsing meðlims Leyfisráðs og Leyfisdóms
- TMA 06.1.3 - Starfslýsing sérfræðings
- TMA 02.1 - Yfirlýsing um trúnað, hlutleysi og virðingu