Afreksstefna KSÍ 2025-2028

Aðferðafræði afreksstefnu KSÍ 2025-2028 leggur grunn fyrir afreksfólk framtíðarinnar og gerir landsliðum Íslands kleift að ná árangri á alþjóðlegum mótum á vegum UEFA og FIFA.  Nánari upplýsingar um hugmyndafræði hvers landsliðs og landsliðsstigann veitir knattspyrnusvið KSÍ. 

Afreksstarf á grunni grasrótarinnar

Afreksstefna KSÍ fyrir árin 2025-2028 er með beina tengingu við heildarstefnumótun KSÍ fyrir árin 2023-2026 þar sem afreksstarf er á meðal lykilþátta.  Nokkur áhersla er lögð á knattspyrnuvísindaþáttinn, þar sem unnið er með mælingar, gögn og greiningar, sem er orðið algjört lykilatriði við framþróun nútíma knattspyrnu og afreksleikmanna framtíðarinnar.

Það er mikilvægt að vinna markvisst að þróun leiksins.  Það er líklega einstakt við íslenska knattspyrnu hversu sterk tengingin milli grasrótarstarfs og afreksstarfs er.  Þessi tenging er órjúfanlegur þáttur starfsins í öllum okkar félögum þar sem ungir iðkendur hefja sína vegferð saman í yngstu flokkunum og fara síðan þegar fram líða stundir annað hvort grasrótarleiðina eða afreksleiðina.  

Afreksstefna KSÍ styður, eins og nafnið gefur til kynna, afreksleiðina, en byggir á þeim grunni sem er lagður með grasrótarstarfi aðilarfélaga KSÍ.  Það eru einmitt þessi tengsl við félögin og samstarf við þau sem gerir afreksstarfið svo öflugt og samstarfið og samtengingin gagnast öllum aðilum.  Gott afreksstarf í félögunum gagnast KSÍ og landsliðunum, og á sama hátt gagnast faglegt afreksstarf KSÍ og landsliðanna félagsliðunum - því leikmennirnir koma jú allir frá félögunum,

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ

Knattspyrnusvið KSÍ var stofnað í apríl 2019. Knattspyrnusviðinu er ætlað að bæta faglega þáttinn í uppbyggingu íslenskrar knattspyrnu og sinna hæfileikamótun.  Á meðal viðfangsefna sviðsins er að móta afreksstefnu KSÍ.

Í afreksstefnu ÍSÍ segir að sérsambönd skuli móta afreksstefnur í samræmi við leiðbeinandi ramma ÍSÍ. Afreksstefna lýsir þeirri leið sem viðkomandi sérsamband velur til að ná langtímamarkmiðum íþróttagreinarinnar.

Meginmarkmið afreksstefnu KSÍ er að skilgreina aðferðafræði knattspyrnusviðsins. Aðferðafræðin leggur grunn fyrir afreksfólk framtíðarinnar og gerir landsliðum Íslands kleift að ná árangri á alþjóðlegum mótum á vegum UEFA og FIFA.

Aðferðafræði er margslungið hugtak og í nútímaknattspyrnu breytast hlutirnir hratt. Þess vegna er mjög mikilvægt að aðferðafræði og afreksstefna KSÍ séu endurskoðuð reglulega.  Markmiðið er að meta stöðuna á hverjum tíma, en einnig að horfa til framtíðar og þeirrar þróunar sem á sér stað í heimi knattspyrnunnar.

Árangur íslenskra landsliða hefur verið stórkostlegur undanfarin ár. Markmið KSÍ er að viðhalda þessum árangri og bæta um betur. Til að það takist verður stöðugt að leita leiða til að bæta starfið og þróa það samhliða alþjóðlegri þróun innan knattspyrnuhreyfingarinnar.

Skilgreining á afreksfólki í íþróttum

Afreksstefna ÍSÍ skilgreinir einstaklinga og flokka sem skara fram úr í íþróttum á eftirfarandi hátt:

  • Um framúrskarandi íþróttafólk eða flokk er þá fyrst að ræða þegar einstaklingur eða flokkur skipar sér með árangri sínum í fremstu röð í heiminum.
  • Afreksfólk eru þeir einstaklingar/flokkar sem standast viðmið í viðkomandi íþróttagrein sem skilgreind eru af viðkomandi sérsambandi.
  • Afreksefni teljast þeir einstaklingar/flokkar sem ekki hafa náð jafn langt en taldir eru með markvissri þjálfun geta skipað sér á bekk með þeim bestu.

Afreksstefnu KSÍ og þeim skilgreiningum sem þar er stuðst við má líkja við uppbyggingu ÍSÍ:

  • A landslið Íslands = Framúrskarandi íþróttafólk
  • Yngri landslið Íslands = Afreksfólk
  • Hæfileikamótun KSÍ = Afreksefni

Til þess að geta sett afreksstefnu til framtíðar er mikilvægt að skilja fortíðina, gera sér grein fyrir gildum íslenskrar knattspyrnu og eiginleikum íslensks knattspyrnufólks. Íslenskir leikmenn búa yfir ákveðnum eiginleikum sem við höfum í huga þegar við ölum okkar landsliðsfólk.

Skipulag

Skipulag er nauðsynlegt inni á knattspyrnuvellinum. Skipulag myndast þegar 11 leikmenn sýna leikfræðilegan aga (e. tactical discipline) og eiga góð samskipti sín á milli.

Agi

Agi er grunnurinn að árangri, bæði í íþróttum og í lífinu. Agi er ekki aðeins metnaður eða hugarfar. Leikfræðilegur agi er mikilvægur eiginleiki í fari afreksmanna.

Hugrekki

Hugrekki er mikilvægt í þjálfun ungra leikmanna. Leikmaður sem veit að hann má gera mistök í leik mun reyna oftar að gera hluti inni á vellinum sem geta breytt gangi leiksins.

Ástríða

Ástríða er eldurinn sem brennur í hjarta afreksfólks. Hún er nauðsynleg til að ná langt í knattspyrnu. Ástríðan vinnur einvígi og með henni getum við unnið sigur gegn hvaða andstæðingi sem er.

Liðsheild

Liðsheild er fimmta gildið, og það sem sameinar hin gildin. Liðsheild er eftirsóknarverður eiginleiki og allir Íslendingar vilja sjá samheldin landslið sem eru skipulögð, öguð, hugrökk og ástríðufull.

Gildi íslenskrar knattspyrnu tengjast hvert öðru, vinna saman og mynda eina sterka heild. Góð íslensk landslið á að vera hægt að þekkja á þessum gildum.

Allt afreksstarf í íslenskri knattspyrnu byrjar í aðildarfélögum KSÍ. Leikmenn landsliðanna fá sitt knattspyrnulega uppeldi og grunnþjálfun hjá sínum félagsliðum. Það er m.a. þessu frábæru starfi félaganna að þakka að landsliðin okkar standast gæðakröfur knattspyrnunnar í Evrópu. Grasrótarstarf á Íslandi fyrir leikmenn á öllum aldri er á heimsmælikvarða og það er mjög mikilvægt að halda áfram að þróa og bæta grasrótina. Þetta er grunnurinn sem elur af sér landsliðsmenn framtíðarinnar.

Á Íslandi er þessi grunnur byggður á fjórum sterkum stoðum:

Aðstaða til knattspyrnuiðkunar: Undanfarna áratugi hafa knattspyrnufélögin í samvinnu við sveitarfélögin lagt grunn að frábærri aðstöðu.

Þjálfarar með þjálfararéttindi: Hlutfall þjálfara með viðeigandi menntun og réttindi er mjög hátt á Íslandi samanborið við nágrannaþjóðir okkar.

Skipulag félaganna: Skipulag er almennt mjög gott, sem byggist m.a. á metnaði þeirra sem standa að rekstri og stjórnun félaganna. Þetta á við um
stjórnir knattspyrnudeilda eða barna- og unglingaráð. Í félögunum er unnið mikið og gott sjálfboðaliðastarf.

Tímasetningar æfinga: Samvinna skóla og knattspyrnufélaganna gerir það að verkum að tímasetningar æfinga eru eins og best verður á kosið.

KSÍ er í samstarfi við aðildarfélög og aðra aðila um ýmis verkefni sem öll miða að því að styrkja grasrótina enn frekar. Eitt af þessum verkefnum er samstarf við HR varðandi mælingar á líkamlegu atgervi og á sálfræðilegum þáttum hjá öllum leikmönnum á landinu á eldra ári í 3. flokki.

Ljóst er að þetta verkefni er einsdæmi í heiminum. Markmiðið er að hjálpa þjálfurum að vinna markvisst með líkamsþjálfun leikmanna og útbúa einstaklingsbundnar áætlanir. Með þessari vinnu verður til gagnagrunnur með upplýsingum um það hvaða eiginleikum bestu leikmennirnir búa yfir. Mögulegt verður að bera saman lið, árganga, einstaklinga og í framhaldinu gera leikmenn meðvitaða um þeirra styrkleika og það sem betur má fara. Unnið er úr niðurstöðum á tveggja ára fresti og verkefnið endurskoðað á sama tíma.

Afreksstarf í félögunum

Knattspyrnusvið KSÍ leggur áherslu á að félögin styrki sitt afreksstarf, en þó án þess að það bitni á grasrótinni og hlutverki þeirra gagnvart almennu íþróttastarfi barna og unglinga. Afreksstarf er einstakt með sitt sérkenni í hverju félagi og mikilvægt er að mótuð sé afreksstefna sem unnið er eftir.
Nýta má þætti úr afreksstefnu KSÍ sem fyrirmynd þegar afreksstefna félags er mótuð. Afreksstarf felst einfaldlega í því að bestu einstaklingarnir fái bestu mögulega þjálfun á öllum sviðum. Þetta eykur möguleikann á að þessir leikmenn nái að hámarka sína hæfileika í framtíðinni. Afreksstefna félaga er til þess fallin að styrkja stoðir félaganna, m.a. fjárhagslega og þegar horft er til ímyndar og metnaðar í starfi þeirra.

Vinna þarf skýrar starfslýsingar fyrir yfirþjálfara yngri flokka og afreksþjálfara. Félögin (í samvinnu við KSÍ) þurfa að styðja sína þjálfara í að bæta við sig þjálfaragráðum og að auka sína þekkingu í þjálfunarfræðum. Getuskipta þarf æfingum og bjóða upp á aukaæfingar og setja upp einstaklingsbundnar áætlanir fyrir þá einstaklinga sem skara fram úr. Afreksleikmenn ættu að spila upp fyrir sinn aldursflokk, en leikjaálag þarf jafnframt að vera í jafnvægi við hina einstaklingsbundnu áætlun.

Markmið knattspyrnusviðs KSÍ eru að mörgu leyti í samræmi við markmiðin hjá grasrótinni og afreksstarfi félaganna. Næstu ár verður gífurlega mikilvægt að efla allt starf sem viðkemur gagnasöfnun og rafrænni aðstoð, úrvinnslu gagna og hagnýtingu þeirra. Afreksstarf félaganna er það starf sem getur skilað mesta árangrinum á næstu árum. Þegar knattspyrnusvið KSÍ fær svo afreksefnin eða afreksfólkið til sín er mikilvægt að vinna markvisst og skýrt eftir afreksstefnu KSÍ.

  • Þeim mun betri leikmenn sem koma úr afreksstarfi félaganna, þeim mun líklegri eru þeir til að ná langt á sínum ferli og verða atvinnumenn hjá erlendum félagsliðum.
  • Því fleiri sem atvinnumennirnir eru, þeim mun betri verða landsliðin okkar.
  • Því betri sem landsliðin okkar verða, þeim mun betri árangri ná þau á alþjóðlegum vettvangi.
  • Þeim mun betri sem árangur landsliðanna okkar verður, þeim mun sýnilegri verður íslensk knattspyrna.
  • Þeim mun sýnilegri sem íslensk knattspyrna og íslenskir leikmenn verða, þeim mun líklegra er að erlend félagslið líti til Íslands í leit að leikmönnum, sem síðan styrkir rekstrargrundvöll íslenskra félaga og gerir þeim kleift að bæta sitt afreksstarf enn frekar.

Efnilegir leikmenn sem spila fullorðins fótbolta í íslensku deildunum frá unga aldri er eitt af okkar sterkustu vopnum.

Rafræna sviðið og mælingar

Það svið knattspyrnunnar sem íslensk knattspyrna getur bætt sig hvað mest á er rafræna sviðið. Í nútímaknattspyrnu er allt mælt, skoðað og metið. Félagslið og landslið í Evrópu þjálfa ekki bara leikmenn sína á knattspyrnuvellinum heldur er þjálfun orðin heildræn (holistic). Undir þessa heildrænu þjálfun falla hlutir eins og leikgreining, miðlæg gagnasöfnun, myndbandsupptökur, hlaupatölur, o.s.frv. Það er markmið KSÍ að styrkja rafrænt samstarf við aðildarfélögin á næstu árum.

Þess má geta að KSÍ hefur frá árinu 2014 mælt leikmenn í yngri landsliðum kvenna og er verkefnið kvennamegin því vel á veg komið. Segja má að um sé að ræða framhald og stækkun á því verkefni með því að hefja einnig mælingar karlamegin. Allar niðurstöður eru skráðar og mynda þannig gagnagrunn og viðmið til framtíðar. Þetta mun jafnframt gefa okkur mikilvægan samanburð á því hvar við stöndum í samanburði við aðrar þjóðir.

Árið 2025 er ætlunin að eiga mikilvægan gagnagrunn með upplýsingum um íslenska leikmenn. Eftir nokkurra ára gagnasöfnun verða fyrstu leikmennirnir búnir að fara í gegnum allt starfið, frá Hæfileikamótun til U21 liða. Með þessum gagnagrunni getum við greint okkar starf, séð hvar við höfum bætt okkur og hvar við þurfum að gera betur.

Á teikniborðinu eru ýmis önnur verkefni, s.s. fastar myndbandsupptökuvélar á keppnisvöllum félaganna, myndbandsgrunnur og efnisveita, sameiginlegur gagnagrunnur fyrir leikgreiningu, sameiginlegur gagnagrunnur og kerfi fyrir GPS mælingar og gögn fyrir einstaklingsbundnar þjálfunaráætlanir.

Fyrirkomulag móta

Til þess að bæta afreksstarf knattspyrnunnar á Íslandi er nauðsynlegt að mótafyrirkomulag sé í stöðugu endurmati. Skoða þarf nýjar hugmyndir í mótamálum, t.d. fyrirkomulag móta í yngri flokkum, breyttar leikreglur í yngstu flokkunum, fleiri leikmínútur fyrir afreksfólk og afreksefni, sérstaka „Hæfileikakeppni“ fyrir bestu lið landsins (afreksfólk og afreksefni) og varaliðskeppni, svo eitthvað sé nefnt.

Heilbrigði og heilsufar

KSÍ er skylt að senda alla leikmenn sem spila keppnisleik fyrir eitt af landsliðum Íslands í árlega heilsufarsskoðun. KSÍ fær leikheimild frá UEFA fyrir hvern og einn leikmann eftir að skoðun þessi hefur verið framkvæmd. Þeir leikmenn sem hafa ekki gengist undir heilsufarsskoðun fá ekki leikheimild og geta þar af leiðandi ekki tekið þátt í verkefnum landsliða. Heilsufarsskoðunin er framkvæmd af lækna- og sjúkrateymi KSÍ og inniheldur hjartalínurit (12 punkta), könnun á sjúkrasögu leikmanns (almenn sjúkrasaga), könnun á ættarsögu (sjúkdómar hjá nánustu fjölskyldumeðlimum) og almenna læknisskoðun (nýleg meiðsli, stoðkerfið, ofnæmi, hæð, þyngd, o.fl.).

Þjálfum saman

Þjálfum saman er verkefni sem sett var á laggirnar haustið 2019 þar sem félögin og KSÍ vinna saman. KSÍ velur afrekshópa af höfuðborgarsvæðinu (16 útileikmenn og 2 markmenn) og raðar upp mánaðarlegum æfingum fyrir 3 hópa (15 æfingar samtals).  Þjálfarar KSÍ og aðildarfélags funda saman fyrir og eftir æfingu. Æfingarnar fara fram hjá aðildarfélögunum og félagið sem heldur æfinguna velur 4 útileikmenn og 1 markmann til viðbótar. Bestu leikmennirnir fá þannig fleiri æfingar þar sem allur hraði er meiri (stöðufærslur, sendingar, o.s.frv.).  Markmiðið er að þróa erkefnið frekar á næstu árum.

Afreksæfingar á landsbyggðinni

Eitt af markmiðum KSÍ er að auka sýnileika utan höfuðborgarsvæðisins með afreksæfingum, svokölluðum landshlutaæfingum, og um leið auka samvinnu,
aðstoð og tengingu við aðildarfélög á landsbyggðinni. Landshlutaæfingarnar fjölga æfingum á vegum KSÍ og er ætlunin að þróa þetta verkefni á næstu árum. Í landshlutaæfingum er landinu skipt upp í 5 landshluta (Reykjavík, Vestmannaeyjar, Austurland, Norðurland og Vesturland) og æft reglulega yfir veturinn í hverjum landshluta, auk þess sem afskekktari svæði eru heimsótt sérstaklega. Alls fara fram tæplega 50 æfingar yfir veturinn þar sem 16–20 leikmenn taka þátt.

Hæfileikamótun


Árið 2014 fór KSÍ fyrst af stað með verkefni sem fékk nafnið Hæfileikamótun KSÍ. Markmiðið með verkefninu er að skoða eins marga leikmenn á eldra ári í 4. flokki (14 ára) og mögulegt er til að gera val fyrir U15 karla og kvenna markvissara. Í Hæfileikamótuninni er farið í gegnum tvær umferðir og um er að ræða um 50 viðburði ár hvert. Í fyrri umferð fara samtals um 450 leikmenn (250 strákar og 200 stelpur) og í seinni umferðinni taka þátt um 330 leikmenn (180 strákar og 150 stelpur).

Í fyrri umferðinni sjá þjálfarar félaganna um að tilnefna leikmenn, en í seinni umferðinni er það í höndum yfirmanns Hæfileikamótunar KSÍ að tilnefna leikmenn í samvinnu við þjálfara félaganna.

Lokapunktur í Hæfileikamótun hvers árs er svokallað Hæfileikamót. Leikmenn sem eru valdir á Hæfileikamótið eru sterkustu leikmenn árgangsins, byggt á frammistöðu þeirra á landshlutaæfingum og í leikjum með sínum félögum. Fyrirkomulagið er þannig að yfirmaður í Hæfileikamótun velur um 60 manna hóp sem hann skiptir upp í 4 lið. Þessi 4 lið spila innbyrðis, alls 3 leikir á lið og 6 leikir í heildina. Að loknu Hæfileikamóti velur U15 landsliðsþjálfari 30 manna úrtakshóp fyrir U15 landslið Íslands sem æfir svo saman.

Samhliða fyrrgreindum afreksæfingum er fylgst með leikmönnum í leikjum með félögum sínum.

Æfingar yngri landsliða

Veturinn 2019-2020 var aðferðafræðinni við æfingar yngri landsliða KSÍ breytt. Í samvinnu við skólana hóf KSÍ æfingar á virkum dögum. Kostirnir við að æfa á þennan hátt eru meðal annars betri æfingatímar og meiri tími með leikmönnum. Leikmenn eru einnig sjaldnar í burtu frá félögunum og geta spilað leiki með þeim um helgar. Öll umgjörð er eins og best verður á kosið og þjálfarar í fullu starfi hjá KSÍ geta þjálfað meira og betur.

Á teikniborðinu er jafnframt næringarfræðsla, íþróttasálfræði, kennsla eða aðstoð við heimanám á milli æfinga, og endurgjöf til leikmanna með myndbandsupptökum af æfingum.

Fjölgun leikja yngri landsliða

Eitt stærsta verkefni knattspyrnusviðs KSÍ á næstu árum er að fjölga leikjum yngri landsliða KSÍ og koma á laggirnar U21 landsliði kvenna. Landsliðin og þróun þeirra er hluti af kjarnastarfsemi KSÍ. Yngri landsliðin leggja grunninn að góðum A landsliðum. Til þess að eiga möguleika á að ná árangri og komast á stórmót A landsliða karla og kvenna þarf að fjárfesta í grunnstoðunum. Grunnurinn er alltaf afreksefnin og afreksfólkið. Með fleiri leikjum og faglegri umgjörð aukast líkur okkar á árangri í framtíðinni. Eitt af okkar verkefnum er að koma á fót og viðhalda U21/U23 landsliði kvenna. Vonir standa tilað UEFA skipuleggi keppni frá og með 2022 fyrir U21 eða U23 lið kvenna og markmið KSÍ er að vera tilbúið þegar til þess kemur.

Þjálfarar

Markmið knattspyrnusviðs KSÍ í þjálfaramálum er að allir landsliðsþjálfarar sem eru í fullu starfi hjá KSÍ þurfa að hafa eða vera byrjaðir á Pro Licence þjálfaragráðu. Í reglugerð KSÍ um menntun þjálfara og í leyfisreglugerð KSÍ er tiltekið hvaða þjálfaragráðu þarf að hafa til að mega þjálfa tiltekna aldursflokka.
Stefnan er ávallt sú að allir þjálfarar landsins séu að lágmarki með réttindi samkvæmt leyfiskerfi og reglugerðum KSÍ.

Fagteymi

Fagteymi er það fólk sem vinnur með landsliðum Íslands (þjálfara-, sjúkrateymi og aðrir). Stefnan er ávallt sú að fagteymið sé þannig skipað að starf og utanumhald landsliða Íslands sé í hæsta gæðaflokki og standist samanburð við aðrar knattspyrnuþjóðir.

Aðstaða

Heimaleikir A landsliða Íslands fara fram á Laugardalsvelli. A landsliðin fá einnig hluta æfinga sinna á sama velli. Aðrir leikir og æfingar landsliða fara fram á keppnisvöllum eða æfingavöllum aðildarfélaganna.  Stærsta verkefni KSÍ og knattspyrnuhreyfingarinnar til lengri tíma á sviði mannvirkja og aðstöðu er að tryggja bestu keppnis- og æfingaaðstöðu landsliðanna okkar. Nýr og endurbættur þjóðarleikvangur og æfingasetur verða að uppfylla væntingar allra hagsmunaaðila og standast kröfur í alþjóðlegum samanburði. 

Það er ljóst að nýr og endurbyggður þjóðarleikvangur er nauðsynlegur til þess að við getum fylgt eftir þeim frábæra árangri sem við höfum náð undanfarin ár. Slíkur leikvangur mun jafnframt þjóna félagsliðum í bikarkeppnum og Evrópumótum.  Við verðum að horfa til næstu áratuga og sýna þann stórhug sem við sýndum þegar Laugardalsvöllur var byggður síðla á 6. áratug síðustu aldar. Í því samhengi verðum við að átta okkur á tengslum afreksstarfs við grasrótarstarf, sem er okkar samfélagi svo dýrmætt.  Sterkar fyrirmyndir og góður árangur landsliðanna okkar hvetur unga iðkendur áfram og styður við okkar öfluga starf sem skilar sér m.a. í betri lýðheilsu, og hefur einnig verið frábær landkynning.

Ein af okkar stærstu áskorunum er að taka réttar ákvarðanir fyrir einstaklinginn og hjálpa þar með til við að búa til framtíðarlandsliðsmenn A liðanna okkar. Hugmyndafræðin er ólík eftir aldursflokkum og einstaklingsbundin vegna þess að við viljum að bestu leikmennirnir fái einstaklingsbundna þjálfun með langtímahagsmuni hvers leikmanns í huga.

Hugmyndafræði yngri landsliðanna tekur við þegar hæfileikamótuninni lýkur. Það er að ýmsu að hyggja þegar leikmenn koma inn í landsliðsumhverfi. Ungur einstaklingur á eftir að taka mörg skref áður en hann verður leikmaður í A landsliði. Öll landsliðin vinna eftir afreksstefnunni en hafa þó hvert um sig sína hugmyndafræði þar sem m.a. kemur fram leikskipulag og leikstíll liðsins, hlutverk liðsins í heild sinni, hlutverk hverrar línu og hverrar stöðu. Einnig er fjallað um hvaða gildum er unnið eftir á mismunandi aldri. Það er ekki síður mikilvægt að vera með á hreinu hvað liðið og einstaklingurinn þurfa að bæta frá þrepinu á undan til að klífa landsliðsstigann.

Eru úrslit leikja mikilvæg?

Svarið við þessari spurningu er stór hluti af hugmyndafræði yngri landsliðanna. Einfalda og rétta svarið er að því yngri sem liðin eru því mikilvægara er að kenna leikmönnunum leikinn og ala upp hugrekki og jákvæð gildi. Það er mikilvægt að leikmenn þori að gera mistök og þori að spila okkar jákvæða leik á móti sterkari andstæðingum. Með því að gefa ungum leikmönnum frelsi til að gera mistök erum við að gefa þeim færi á að læra og verða betri.

Landsliðsstiginn

Vegvísir sem sýnir leið leikmanns frá U15 landsliði og upp í A landslið. Landsliðsmenn þurfa að kynnast umgjörð landsliða, læra á hana og kunna að nota hana til að hámarka frammistöðu sína og auka þannig líkurnar á því að ná að taka öll skrefin sem til þarf upp í A landslið. Landsliðsstiginn er í fjórum þrepum og er þeim lýst hér að neðan:

U15 - Kynna: 

Leikmenn kynnast því hvað það er að vera landsliðsmaður og hluti af landsliði og kynnast umgjörðinni, vinnulaginu og gildunum.

U17 - Læra: 

Leikmenn læra að vera landsliðsmenn og hluti af landsliði. Þeir læra á verklagið, nýta umgjörðina, gildin og að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum.

U19 - Framkvæma: 

Leikmenn þekkja hvað það er að vera landsliðsmenn og hluti af landsliði, þekkja umgjörðina, vinnulagið og gildin og nýta þessa þætti til að framkvæma það sem til er ætlast af þeim innan og utan vallar.

U21 - Frammistaða: 

Leikmenn nota þau þrep sem þeir hafa þegar klifið til að sýna hámarksframmistöðu sem landsliðsmenn og hluti af landsliði, og nýta frammistöðuna og þá reynslu sem þeir hafa öðlast til að taka skrefið upp í A landslið.

Nánari upplýsingar um hugmyndafræði hvers landsliðs og landsliðsstigann veitir knattspyrnusvið KSÍ.

Í fremstu röð

Til að fylgja eftir afreksstefnu KSÍ fyrir árin 2025–2028 notast KSÍ við tæki og tól til að mæla árangur og tryggja að markmiðin náist með markvissum hætti. Mikil áhersla er lögð á reglubundnar mælingar og mat á framvindu stefnunnar. Þetta ferli felur í sér að reglulega er staldrað við til að greina stöðuna, skoða hvort stefnan skilar tilætluðum árangri og gera breytingar ef aðstæður krefjast þess. Með þessum hætti er hægt að tryggja að stefnan sé sveigjanleg og taki mið af raunverulegum aðstæðum.

Mikilvægar mælingar sem fylgst er með snúa bæði að hlutlægum og huglægum þáttum. Hlutlægar mælingar fela meðal annars í sér frammistöðu A-landsliða, stöðu þeirra á FIFA-styrkleikalista og fjölda íslenskra knattspyrnumanna í atvinnumennsku. Jafnframt er lögð áhersla á frammistöðu yngri landsliða, þar sem markmiðið er að tryggja sæti þeirra í öðrum styrkleikaflokki og ná góðum árangri í undankeppnum og lokakeppnum á alþjóðavettvangi. Má í því samhengi nefna að  U19 landslið karla og kvenna náðu bæði þeim eftirtektarverða árangri að fara í lokakeppni UEFA árið 2023.

Með því að skrásetja gögn m.a. líkamleg, sálfræðileg og gögn sem unnin eru með leikgreiningu, þá auðveldar það KSÍ að sjá þróun leikmanna og einnig er mögulegt að greina hversu margir leikmenn færa sig upp í gegnum landsliðsstigann og upp í A-landsliðin. Þetta  gefur einnig mikilvæga innsýn í virkni og árangur afreksstarfsins innan KSÍ.

Huglægir þættir í árangursmati snúa að því hvernig einstaklingsbundin þjálfun styður við leikmenn. Með markvissri greiningu og notkun á sérsniðnum þjálfunaráætlunum ásamt nýtingu á þeim tækjum og tólum sem unnið er með er unnt að styðja betur við þá leikmenn sem sýna fram á að þeir gætu verið landsliðsmenn í framtíðinni. Markmiðið er að greina hæfileikana snemma og veita þeim leikmönnum sem eru líklegir til að ná lengst þann stuðning sem þeir þurfa. Ísland er í einstakri stöðu hvað þetta varðar vegna smæðar sinnar, sem gerir það auðveldara að nálgast leikmenn, styðja þá markvisst og fylgjast með þróun þeirra. Þarna kemur samstarfið við aðildarfélög KSÍ sterkt inn því mikilvægt er að það sé gott og unnið sé í samvinnu við að bæta leikmenn sem er þá bæði félagsliðunum og landsliðunum til heilla.

Gildi KSÍ endurspegla kjarna íslenskrar knattspyrnu, þar sem áhersla er lögð á aga, skipulag, ástríðu, hugrekki og liðsheild. Þessi gildi eru ekki aðeins grundvöllur fyrir afreksþjálfun heldur líka fyrir knattspyrnuna í heild sinni, frá grasrót upp í A-landslið. Mikilvægi liðsheildarinnar er sérstaklega dregið fram, bæði sem gildi sem bindur alla þátttakendur saman og sem leiðarljós í samstarfi við aðildarfélög, þjálfara, leikmenn og stuðningsaðila.

Þetta heildstæða kerfi tryggir ekki aðeins að árangur sé mælanlegur heldur að íslensk knattspyrna sé í stöðugri framþróun, byggð á traustum gildum og samstöðu allra sem að henni koma. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja að Ísland haldi áfram að vaxa og keppa á jafnréttisgrundvelli við stærri og sterkari knattspyrnuþjóðir á heimsvísu.

Afreksstefna KSÍ leggur ekki aðeins áherslu á tæknileg og taktísk atriði heldur einnig á víðtæka þekkingu og stuðning á sviði vísinda, sem hefur reynst lykilþáttur í framþróun íslenskrar knattspyrnu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að bæta andlega og líkamlega vellíðan leikmanna og styrkja þannig grunninn að heildrænni þjálfun. KSÍ hefur átt gott samstarf við háskólasamfélagið í þessum efnum. Einnig hefur FIFA komið inn með stuðning og styrkt þetta starf með myndarlegum hætti. Þeir þættir sem unnið hefur verið hvað mest í innan vísindasviðs eru:

Sálfræðilegir þættir og vellíðan leikmanna
KSÍ hefur unnið markvisst með andlega þætti leikmanna til að styðja við sjálfstraust, einbeitingu og streituþol. Sálfræðileg vinna hefur verið samþætt í afreksþjálfun, þar sem mikil áhersla er lögð á vellíðan leikmanna utan vallar. Sérstök athygli hefur verið á mikilvægi svefns fyrir endurheimt, áhrifaríka streitustjórnun og hollt mataræði til að hámarka árangur bæði á æfingum og í leikjum.

Líkamlegir þættir og GPS-gögn
Þróun líkamlegs ástands leikmanna er styrkt með ítarlegum mælingum og greiningum. GPS-tækni er notuð í samstarfi við félagslið til að safna upplýsingum um hreyfimynstur, hlaupatölur og afköst leikmanna. Þessi gögn eru nýtt til að sérsníða æfingaáætlanir, bæta endurheimt og fyrirbyggja meiðsli. Náið samstarf við félögin hefur gert KSÍ kleift að veita leikmönnum betri stuðning og tryggja samfellu í þjálfun þeirra.

Leikgreining á liðsheild og einstaklingum
Leikgreining hefur tekið stórt skref fram á við síðustu ár og misseri. Þjálfarar og leikgreinendur KSÍ notast við nýjustu tæki og tól þegar kemur að því að vinna við leikgreiningar. Hafa þessir aðilar hlotið kennslu og þjálfun í notkun á þessum tækjabúnaði sem notaður er til að greina bæði leiki í heild sinni og einstaka leikmenn. Með því að rýna í gögn um frammistöðu, bæði innan liðsins og einstaklingsbundið, hefur verið hægt að setja fram nákvæmar og markvissar leiðbeiningar til úrbóta. Þetta er í takt við alþjóðlega þróun þar sem leikgreining gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegu umhverfi knattspyrnunnar.

Framtíðaráherslur
Horft er til framtíðar með áherslu á að efla þessi svið enn frekar, í takt við þróunina í heimi fótboltans. Markmið KSÍ er að nýta nýjustu vísindi og tækni til að hámarka möguleika leikmanna, ekki aðeins til að ná árangri á vellinum heldur einnig til að stuðla að langtíma vellíðan og heilsu þeirra. Með samvinnu við félagslið, þjálfara og aðra sérfræðinga stefnir KSÍ að því að byggja upp heildrænt kerfi sem nýtist íslenskri knattspyrnu.

Þessar framfarir, ásamt sterkri áherslu á grunn- og afreksgildi knattspyrnunnar, leggja grunninn að framtíð íslenskrar knattspyrnu þar sem leikmenn íslenskra félaga og landsliða verða í fremstu röð bæði innan lands og utan.

Jörundur Áki Sveinsson, sviðsstjóri knattspyrnusviðs KSÍ