Komdu í fótbolta með Mola
Verkefnið "Komdu í fótbolta", samstarfsverkefni KSÍ og Landsbankans, heldur áfram sumarið 2024 og felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt. Siguróli Kristjánsson, oftast kallaður Moli, hefur umsjón með verkefninu og mun hann setja upp skemmtilegar og fjölbreyttar fótboltabúðir á hverjum stað til að efla áhuga iðkenda og styðja við bakið á knattspyrnustarfinu á staðnum.
Moli er Akureyringur í húð og hár og lék um árabil með Þór, auk þess sem hann hefur þjálfað hjá félaginu í mörg ár. Þess má einnig geta að hann á tvo A landsleiki að baki.
Stöðvarfjörður -18 krakkar mættu á aldrinum 2-13 ára.
Breiðdalsvík - fjórir mættu á æfinguna, en nokkrir tóku æfinguna á Stöðvarfirði fyrr um daginn.
Skagaströnd - Frábær mæting - 20 krakkar mættu ásamt þjálfara.
Hofsós - 19 krakkar mættir á æfingu, en öll eru að æfa reglulega undir styrkri stjórn Bjarka þjálfara.
Varmahlíð - 23 krakkar mættir á æfingu og mikill áhugi. Tveir þjálfarar á staðnum sem hjálpuðu til við æfinguna.
Djúpivogur - 20 krakkar mættir á svæðið ásamt þjálfara sínum. Mikill áhugi á fótbolta.
Kirkjubæjarklaustur - 18 krakkar ásamt þjálfara sínum mættu á æfingu.
Vík í Mýrdal - 23 krakkar létu sjá sig á æfingu ásamt þjálfara sínum. Einnig mættu 10 foreldrar og forráðamenn - mikil ánægja með framtakið.
Flúðir - 17 krakkar mættir á æfingu ásamt þjálfara sínum honum Georgi.
Stokkseyri - 21 krakki mætti á æfingu ásamt Tómasi Þóroddssyni, landshlutafulltrúa Suðurlands í stjórn KSÍ.
Eyrarbakki - 23 krakkar mættu ásamt þjálfara og forráðamönnum.
Hólmavík - 10 mættir á æfingu ásamt tveimur þjálfurum.
Búðardalur - 13 mættu á æfinguna ásamt Jóni Agli, forráðamanni sem er allt í öllu.
Seyðisfjörður - 13 krakkar mættir og frábær þjálfari.
Kópasker - 5 krakkar mættu og það var mikið fjör.
Ásbyrgisleikarnir
Þórshöfn - 21 krakki mætti ásamt sex foreldrum. Börn á aldrinum 6-12 ára, einn 16 ára einnig.
Raufarhöfn - 11 krakkar mættu á æfingu.
Vopnafjörður - Moli leit þar við og horfði á æfingar hjá félaginu.
Patreksfjörður - Sameiginleg æfing fyrir Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal. 26 krakkar mættu á æfinguna ásamt tveimur þjálfurum.
Flateyri - 11 krakkar mættu á æfinguna ásamt þremur forráðamönnum.
Suðureyri - 22 krakkar mættu á æfingu ásamt fimm forráðamönnum. Allir mjög áhugasamir og ánægðir með daginn.
Súðavík - 9 komu á æfingu, flott aðstaða á svæðinu.
Þingeyri - 17 krakkar mættu á svæðið ásamt forráðamönnum.
Vogar - 36 krakkar mættu á æfinguna ásamt Hákoni og Elfari, þjálfurum þeirra.
Þorlákshöfn - 27 krakkar og þrír þjálfarar mættir á svæðið.
Ólafsvík - Ótrúleg mæting, 53 krakkar mættir á æfingu. Flott umgjörð og flottir þjálfarar.
Grundarfjörður - 32 krakkar og allt fullt af foreldrum að horfa á.
Stykkishólmur - 38 krakkar og tveir þjálfarar.
Kjalarnes - 21 krakki frá 1.-10. bekk ásamt flottum þjálfara.